VIBS2KU03 - Kvikmyndahátíð, undirbúningur

Í þessum áfanga læra nemendur hvernig á að skipuleggja og halda kvikmyndahátíð. Þau skoða aðrar kvikmyndahátíðir, gera kynningarefni, halda utan um samfélagsmiðla, vefsíðu og ýmislegt annað sem felst í kvikmyndahátíð. Í framhaldsáfanganum á vorönninni, VIBSKF02, er síðan hátíðin sjálf haldin og framkvæmd.