VIHB2SJ10 - Vinnustaðanám heilbrigðisritara, sjúkrahús

Um er að ræða verklega áfanga á vinnustað 6 vikur á sjúkrahúsdeild (36 tímar á viku). Nemendur fá tækifæri til að kynnast flestum störfum heilbrigðisritara á deildum ásamt skipulagi og starfsháttum vinnustaðarins. Nemendur læra að axla ábyrgð og sýna sjálfstæði í starfi.