ILMO2KO05 - Ilmolíufræði

Hvað eru ilmolíur og hvernig eru þær notaðar?

Farið verður yfir sögu þeirra og vinnsluaðferðir.

Helstu eiginleikar algengra ilmkjarnaolía verða skoðaðir.

Fjallað verður um virkni ilmkjarnaolía á helstu líkamskerfi og hvernig er best að nota þær fyrir hvert kerfi.

Áfanginn er öllum opinn kenndur á haustönn og allir nemendur eru í fjarnámi hvort sem þeir eru skráðir í dagskóla eða fjarnám.