VIHB2HG10 - Vinnustaðanám heilbrigðisritara, heilsugæsla eða móttaka

Um er að ræða verklega áfanga á vinnustað 6 vikur á heilsugæslu (36 tímar á viku). Nemendur fá markvissar leiðbeiningar í vinnuferlum samkvæmt starfslýsingu, þjálfun í samvinnu og tækifæri til að takast á við raunverulegar aðstæður á vettvangi. Ætlast er til að nemendur fái að kynnast sem flestum störfum heilbrigðisritara á vinnustaðatímanum.